Málverk af Guðrúnu Erlendsdóttur, fyrrverandi forseta Hæstaréttar og fyrstu konunni sem skipuð var dómari við réttinn, var afhjúpað við hátíðlega athöfn í Hæstarétti á föstudag. Guðrún afhjúpaði verkið sjálf ásamt listamanninum Stephen Lárusi Stephen.