Ekki eru forsendur eins og staðan er núna til að mynda ríkisstjórn sem hefur nægan stuðning á þingi. Þetta sagði Magdalena Andersson leiðtogi Jafnaðarmanna í Svíþjóð á blaðamannafundi í morgun eftir að hún gerði forseta þingsins grein fyrir stöðunni.Andersson segist hafa átt mörg samtöl við leiðtoga flestra flokka. Nokkur skref hafi verið stigin en það hafi ekki dugað til. Hún sagðist þó hafa tilkynnt þingmanninum að hún væri tilbúin í atkvæðagreiðslu í þinginu um hver eigi að verða forsætisráðherra. Ef hún verður valin í slíkri atkvæðagreiðslu tekur þá að öllum líkindum við minnihlutastjórn sem Jafnaðarmenn sitja einir í.Andreas Norlén forseti þingsins ákveður næstu skref í stjórnarmyndun. Sænskir fjölmiðlar segja líklegt að hann ræði við leiðtoga allra flokka og taki ákvörðun í framhaldi