Þingið í Ungverjalandi samþykkti í morgun að fjarlægja lagaákvæði gegn hinsegin fólki í sérstökum „barnaverndarlögum“ sem samþykkt voru árið 2021. Þetta er fyrsta skrefið í að afnema takmarkanir á réttindum hinsegin fólks sem var komið á í stjórnartíð Viktors Orban.Í lögunum var kveðið á um að ekki mætti sýna eða kynna neitt sem gæfi til kynna fjölbreytni í kynferði eða kynhneigð í efni sem væri aðgengilegt börnum. Rökin fyrir þessu þegar lögin voru sett voru að vernda börn yngri en 18 ára fyrir efni sem gæti skaðað alvarlega líkamlegan, tilfinningalegan, vitsmunalegan eða siðferðislegan þroska barnsins, eins og það var orðað.Breytingin var samþykkt með miklum meirihluta, 139 atkvæðum gegn 51. Hún felur einfaldlega í sér að í stað bannsins er einfaldlega sagt að leitast verði við að vernda