Jóhannes Bjarki Bjarkason skrifar:Marsibil er fyrsta breiðskífa samnefnds tvíeykis sem telur meðlimina Unu Schram og Kára Hrafn Guðmundsson. Hvorki Una né Kári eru viðvaningar þegar kemur að tónlistargerð en bæði hafa þau haldið úti tónlistarferli, hvort í sínu lagi. Í því samhengi má nefna að hlustendur ættu að kynna sér plötu Unu, Pond Big, Fish Tiny, og samstarfsverkefni Kára við Rakel Sigurðardóttur, canyouhelpmeimfeelingalone.Marsibil er grautur þessara tveggja tónlistarstrauma sem fellur vel að eyrum. Hér er á ferðinni sterk frumraun í fáguðu indí-poppi sem augljóslega er sterklega litað af bakgrunni listamannanna tveggja. Ber þar helst að nefna djass og RnB, en afbrigði nýsálar- og draumapopps koma einnig fram.Þá er plötunni hálfpartinn skipt upp í tvennt. Fyrri hlutinn reiðir sig á