Lögregluembættin á Vestfjörðum og Norðurlandi vestra hafa sent frá sér tilmæli til vegfarenda fyrir óveðrið sem er að vænta á morgun. Appelsínugular viðvaranir hafa verið gefnar út á Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra og varar Veðurstofan við því að það verði ekkert ferðaveður þegar veðrið er hvað verst.Lögreglan á Norðurlandi vestra biður fólk að flýta ferðum sínum eða bíða þar til veðrið er gengið yfir. Lögreglan á Vestfjörðum hvetur þau sem ætla að fara á milli landshluta að huga að veðri og veðurspá.Viðvaranir morgundagsins.gottvedur.is