Lognið fyrir storminn

Landsmenn geta átt von á hægum vindi en nokkurri rigningu í dag. Íbúar á Norður- og Austurlandi þurfa þó að bíða fram yfir hádegi áður en blotnar eitthvað þar.Vonskuveðri er spáð á morgun með gulum og appelsínugulum viðvörunum á flestum spásvæðum, fyrir utan norðausturhornið og höfuðborgarsvæðið. Þá er hætt við að samgöngur fari úr skorðum, sérstaklega á norðvestanverðu landinu.Veðurspáin er svohljóðandi: Hæg suðlæg eða breytileg átt, en suðvestlæg átt, 3-8 síðdegis. Þurrt að kalla á Norður- og Austurlandi, en lítilsháttar væta þar seinnipartinn. Skúrir sunnan- og vestanlands. Hiti 6 til 10 stig.Gengur í austan storm á miðvikudag með talsverðri eða mikilli úrkomu, en snýst í vaxandi norðanátt seinnipartinn og kólnar með snjókomu norðanlands um kvöldið. Suðvestlæg eða breytileg átt með skúr
Lognið fyrir storminn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd