Alberta er fjórða stærsta fylki Kanada og þar búa um fimm milljónir íbúa. Skoðanakannanir benda til þess að aðeins um fjórðungur íbúa Alberta vilji fullt sjálfstæði frá Kanada. Niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar eru ekki bindandi.Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, kallaði eftir samstöðu þjóðarinnar í myndskeiði sem hann setti á samfélagsmiðla í gær. Carney, sem ólst upp í Alberta, sagði landið standa frammi fyrir ýmsum ógnum við efnahaginn, öryggi og lífsvenjur þjóðarinnar.Carney sagði mikla uppbyggingu í Alberta sem myndi skapa tækifæri og velmegun fyrir hundruð þúsunda íbúa fylkisins. En þessum árangri væri ekki hægt að ná ef þjóðin væri sundruð.Aðskilnaðarsinnar í Alberta setja sig upp á móti umhverfisreglugerðum í olíuiðnaðinum, hafa áhyggjur af innflytjendamálum og hafa sakað st