Nokkrir bandamenn Úkraínu og netnotendur segja að snarlega hafi dregið úr rússneskum áróðri og upplýsingaóreiðu á netinu. Ástæðan er sögð nýlegar árásir Úkraínuhers á rússnesk gagnaver.Úkraínuher gerði þrjár árásir á gagnaver rússneska fyrirtækisins Yandex í síðustu viku. Fyrirtækið hefur verið kallað rússneska Google en það rekur vinsælustu vefleitarvél Rússlands, auk matar- og leigubílapöntunarsmáforrita sem notuð eru af tugum milljóna manna.Margir netnotendur segja að dregið hafi úr efni á samfélagsmiðlum sem sé til stuðnings Donald Trump Bandaríkjaforseta, Rússlandi eða þýska þjóðernisflokknum AfD sem er hliðhollur Rússum. Þeir segja að árásirnar hafi slökkt á rússneskum áróðursbottum, sem eru notaðir til að dreifa efni í lélegum gæðum, gjarnan áróðri eða upplýsingaóreiðu. SEGIR ANDR