Halla Tómasdóttir forseti Íslands hefur verið í alþjóðlegri nefnd um gervigreind síðan í sumar. Hún segir markmið nefndarinnar að ræða hvernig hægt sé að nýta gervigreindina til góðs og hvernig hægt sé að varast hætturnar.Hún var gestur í Silfrinu í kvöld þar sem meðal annars var rætt um gervigreind.Halla segir að vel sé hægt að nýta gervigreindina til góðs og hefur talað fyrir því. Það sé mikilvægt að setja upp einhvers konar varnir og nefnir í því samhengi þrenns konar varnir sem hún hefur velt mest fyrir sér: að verja börn og ungmenni gegn því að lenda í slæmri stöðu, verjast gegn vaxandi efnavopnaframleiðslu, s.s. kjarnorkuvopnum og öðru, og svo að verjast gegn djúpfölsunum og getu óvinveittra aðila til að hafa áhrif á samtalið í samfélaginu og lýðræðislegt samtal og jafnvel kosningar