Tekist er á um bókun 35 á Alþingi þessa dagana og hefur mikið verið rætt hvort hún sé í tæknileg útfærsla eða hvort hún varði við stjórnskrá Íslands. Í grunninn kveður bókun 35 um að þegar innleiddar Evrópureglur stangast á við eldri, almenn íslensk lög, skuli EES-reglurnar hafa forgang.Davíð Þór Björgvinsson, prófessor emerítus við Háskólann á Akureyri, segist ekki horfa á málið sem pólitískt heldur mun fremur sem lögfræðilegt mál. Rætt var við hann og Eirík Svavarsson lögmann í Kastljósi í kvöld.„Ég lít á þetta sem þannig að skuldbindingin til að tryggja EES-reglum forgang þegar það á sé alveg skýr samkvæmt EES-samningnum,“ segir Davíð sem telur að helsti ágreiningur um bókun 35 sé hvernig þetta sé gert.Lögmenn sem rætt var við í Kastljósi eru ósammála um hvort gera þurfi breytingar á st