Rósa Guðbjartsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins segist hafa heillast af sjálfkeyrandi bílum fyrir um ári og það mikið á því að græða að uppfæra lög svo að svoleiðis tækni sé möguleg hérlendis. Þá sé öryggið í þessum bílum sjö- eða áttfalt meira en í hefðbundnum akstri og maður upplifi það mjög fljótt að geta slakað á og nýtt tímann í umferðinni í stað þess að þurfa að einbeita sér að akstrinum.