Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur segir ólíklegt að vopnahlé á milli Rússa og Úkraínumanna, sem Donald Trump forseti Bandaríkjanna tilkynnti um helgina, hafi nokkurn tímann verið raunverulegt.„Það virðist hafa verið andvana fætt og jafnvel ekki talað við Rússa um það og allt þetta útspil um að lækka dísilverð fyrir kosningar í Bandaríkjunum virðist hafa verið mjög misráðið,“ segir Erlingur en rætt var við hann í kvöldfréttum.Umfang samnings Bandaríkjanna og Rússlands gefi til kynna að hann hafi lítil áhrif á olíuverð í Bandaríkjunum. „Þannig að þetta er enn eitt útspilið hjá Donald Trump sem er óþægilegt fyrir Úkraínu en ekki raunverulegt,“ segir hann.Hernaðarsagnfræðingur segir ólíklegt að vopnahlé sem Donald Trump forseti Bandaríkjanna tilkynnti um helgina á milli Úkraínu og Rúss