Fjárfestingafélag Bjarna Ármannssonar hefur fengið heimild frá Seðlabankanum til að fara með yfir tíu prósenta eignarhlut í Skaga, sem á meðal annars VÍS og Fossar fjárfestingabanka, eftir að hafa stækkað enn frekar stöðu sína í félaginu. Bjarni er eini einkafjárfestirinn í dag með heimild til að fara með virkan eignarhlut í einum af stærri fjármálafyrirtækjum landsins.