Bandaríska leikkonan Selma Blair var í dag handtekin og hefur verið ákærð fyrir í það minnsta tvær líkamsárásir gegn lögreglumanni og hjúkrunarfræðingi en tvær flugfreyjur hlutu einnig áverka þegar Blair veittist að þeim um borð í flugvélinni. Á hún meðal annars að hafa bitið aðra þeirra og kýlt hina en Alríkislögreglan (FBI) er með málið á sínu borði.