Vinnuhópar hafa verið skipaðir, ræður haldnar, stefnur settar - og árið 2023 beitti Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þáverandi háskóla-, iðnaðar- og vísindaráðherra, sér fyrir því að töluverðir fjármunir voru settir í að efla tæknimenntun á háskólastigi. Í atvinnustefnu núverandi ríkisstjórnar er líka lögð áhersla á að hækka hlutfall háskólamenntaðra í þessum greinum.Og hvernig hefur gengið? Ekki sérlega vel, að minnsta kosti ekki ef litið er á upplýsingar um fjölda þeirra sem hafa útskrifast úr þessum greinum síðustu árin frá stærstu háskólum landsins, Háskóla Íslands og Háskólanum í Reykjavík. Þar hefur þeim sem útskrifast úr grunnnámi í þessum greinum heldur fækkað eða fjöldinn staðið í stað.Færri nýnemar hófu sömuleiðis nám í STEM-greinum í haust en í fyrra. Mestu munar um að töluvert fæ