Um 200 tilkynningar hafa borist Veitum síðustu daga, ýmist vegna vatnsleysis eða minni þrýstings á vatni. Upplýsingafulltrúi segir slíkum tilkynningum alltaf fjölga á haustin. Þær hafi þó verið óvenju margar undanfarið. TILKYNNINGARNAR ÓVENJU MARGAR „Við höfum fengið töluvert margar tilkynningar um helgina og í dag. Fólk er ekki að fá nægt heitt vatn og síurnar eru að stíflast,“ segir Silja Ingólfsdóttir, upplýsingafulltrúi Veitna.Silja segir slíkum tilkynningum alltaf fjölga á þessum tíma árs þegar notkun á heitu vatni eykst. Tilkynningarnar undanfarna daga séu þó óvenjulega margar.„Síðast þegar ég taldi voru þetta um 200 tilkynningar sem okkur hafa borist frá því á laugardagsmorgun, sem er extra mikið miðað við oft áður,“ segir Silja.Stærsta umkvörtunarefni fólks sé að þrýstingurinn á