Sverrir Einar Eiríksson, skemmtistaða- og áfengisverslunareigandi, segir mikilvægt að ábyrgð á beitingu opinbers valds þurfi að taka alvarlega en hann var í dag dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir meiriháttar skattalagabrot, meðal annars í rekstri skemmtistaðarins B í Bankastræti. Þá telur hann aðgerðir tiltekinna starfsmanna lögreglu og Skattsins hafa valdið sér og fyrirtækjunum sínum verulegu tjóni.