Frönsku stórmarkaðskeðjurnar E. Leclerc, Intermarche og Cooperative U urðu fyrir netárás sem beindist að kælum stórmarkaðanna. Nokkur hundruð matvöruverslanir urðu fyrir árásinni sem varð til þess að henda þurfti skemmdum mat í stórum stíl.Fjölmiðlar segja að keðjur eins og Carrefour og Monoprix hafi líka lent í þessu en þær hafa ekki staðfest það.Árásirnar beindust að kælistýringarkerfi sem danska fyrirtækið Danfoss framleiddi en það fyrirtæki er þekktast á Íslandi fyrir ofnakerfi. Árásarmönnunum tókst að virkja afþýðingarkerfi kælanna í fjölda verslana og hækka hitastigið í þeim. Verslanirnar sem urðu fyrir þessu urðu að farga öllum kælivörum, hvort sem þær voru ferskar eða frosnar. Saksóknarar segja að í einhverjum tilfellum hafi jafnvel kviknað eldur.Dominique Schelcher, forstjóri Coop