Minnst einn lét lífið þegar hann handlék ósprungna sprengju

Sjúkrabíll á vettvangi.EPA / ATEF SAFADIAð minnsta kosti einn var drepinn í norðurhluta Ísraels þegar árás var gerð á rútu með framhaldsskólanemum á skólaferðalagi nærri bænum Maalot-Tarshiha hjá landamærunum að Líbanon. Minnst 24 til viðbótar særðust að sögn varnarmálaráðherrans Israel Katz sem sendi fjölskyldu hans samúðaróskir og óskaði hinum særðu skjóts bata. Rannsókn er hafin.Ísraelsher segir fyrstu athugun benda til þess að nemandinn hafi fundið og handleikið ósprungna klasasprengju frá bardögum hersins við Hezbollah-hreyfinguna fyrir þremur árum. Lögregla segir skólann hafa veitt leyfi fyrir ferðalaginu á svæðinu sem Hezbollah hefur ítrekað ráðist gegn.
Minnst einn lét lífið þegar hann handlék ósprungna sprengju

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd