Evrópusambandið bætti formlega við hátt í 1.600 nýjum einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum á listann yfir þá sem sæta efnahags- eða viðskiptaþvingunum vegna þátttöku í stríðinu í Úkraínu. Þetta eru 826 rússnesk fyrirtæki og 743 einstaklingar sem stýra þessum fyrirtækjum. Þetta er stærsta einstaka viðbótin á listanum yfir slíkar þvinganir frá því stríðið í Úkraínu hófst. Þær ná nú til um 3.500 einstaklinga og lögaðila.Kaja Kallas utanríkismálastjóri Evrópusambandsins segir að Evrópa sé enn á ný að sýna samstöðu með þessum aðgerðum. „Við gerum það mun erfiðara, seinlegra og dýrara fyrir Rússa að framleiða vopn sem þeir nota til að drepa Úkraínumenn,“ sagði hún.Í tilkynningu frá ráðherraráði Evrópusambandsins kemur fram að þessar þvinganir beinist aðallega að þeim sem framleiða vopn. Þeir