„Þetta er allt of hár dómur,“ segir Þorgils Þorgilsson, lögmaður Andra Más Mortensen Birgissonar sem var í dag dæmdur í átta ára fangelsi fyrir aðild sína að Reykholtsmálinu í Héraðsdómi Suðurlands. „Allavega við fyrstu sýn, við eigum náttúrulega eftir að fara yfir dóminn og forsendur hans.“Dómurinn hefur enn ekki verið birtur en lögmenn segja að hann sé alls um 200 blaðsíður.Alls voru sex dæmd í málinu í dag fyrir þátt sinn í að halda 61 árs gömlum palestínskum manni föngnum, beita hann ofbeldi og hafa af honum fé í Reykholti árið 2024. Sjá má sundurliðun dóma í fréttinni hér fyrir neðan. EKKI VITAÐ HVORT DÓMINUM VERÐI ÁFRÝJAÐ Fordæmalaust magn af upptökum var til í málinu þar sem vitað var að sími Andra Más tók upp öll samtöl og hljóð um leið og reynt var að hringja úr símanum – hvort