Athafnamaðurinn Sverrir Einar Eiríksson hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsisdóm fyrir meiriháttar skattalagabrot. Þar af er 21 mánuður skilorðsbundinn og er Sverri því gert að afplána 3 mánuði.Þá er honum einnig gert að greiða hátt í 105 milljón króna sekt í ríkissjóð ella skuli hann sæta fangelsi í 360 daga.Dómurinn féll í Héraðsdómi Reykjavíkur á föstudaginn og laut að rekstri Sverris á fjórum einkahlutafélögum. Þá er honum einnig gert að greiða málsvarnarlaun skipaðra verjenda sinna, Jóns Arnar Árnasonar lögmanns, 3,8 milljónir króna og Sveins Andra Sveinssonar lögmanns, 250 þúsund krónur. EKKI BANNAÐ AÐ STOFNA FÉLÖG Ákæruvaldið fór fram á að Sverri yrði bannað að stofna félag með takmarkaðri ábyrgð félagsmanna, sitja í stjórn, starfa sem framkvæmdastjóri eða koma með öðrum hæt