Skæruliðasveitir Húta í Jemen héldu eldflaugaárásum á Sádi-Arabíu áfram í gærkvöld og nótt. Árás var gerð á eina af flugstöðvum alþjóðaflugvallarins í Riyadh í gærkvöld þar sem einn var drepinn og 11 særðust. Að auki skutu loftvarnarkerfi niður aðra eldflaug nærri flugvellinum.Þessi árás bætist ofan á aðra sem gerð var um sólarhring áður, þar sem 13 manns voru drepnir. Myndskeið af þeirri árás úr öryggismyndavélum var birt í morgun. Þá var einn líka drepinn í árás á flugvöllinn í DammamHútar í Jemen gerðu aðra árás á flugvöllinn í Riyadh höfuðborg Sádi-Arabíu í nótt. Stjórnvöld þar hafa tilkynnt um tímabundna lokun flugvallarins, sem er líkleg til að vara fram eftir þessari viku.Árásirnar eru afsprengi borgarastyrjaldarinnar í Jemen þar sem Hútar berjast á móti stjórnarhernum. Stjórnarheri