„Reka inn á morgun“ áður en veðrið skellur á

Djúp lægð stefnir á landið og má búast við hvassviðri og úrkomu á miðvikudag. Versta veðrið verður á norðvestanverðu landinu. Garðar Valur Gíslason er bóndi á Stórhóli í Húnaþingi vestra og var í óðaönn að eltast við eftirlegukindur þegar fréttastofa náði af honum tali.„Við erum hérna uppi á heiði að eltast við nokkrar kindur,“ sagði Garðar. Öll smalamennska og seinni göngur eru búnar á svæðinu og því allt að verða tilbúið fyrir veturinn.„Ég held ég reki inn á morgun. Það er betra að reka inn á morgun og hleypa þá bara aftur út. Það er allt komið í heimahaga.“ BÆNDUR Í SKAGAFIRÐI TAKA STÖÐUNA Sveinn Finster Úlfarsson er sauðfjárbóndi á Ytri-Ingveldarstöðum í Skagafirði.„Ég er niðri við sjó, þannig að hver gráða í hita skiptir máli. Um leið og þetta er komið upp til fjalla verður þetta e
„Reka inn á morgun“ áður en veðrið skellur á

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd