Ráðleggja minni loðnuveiði en gert var ráð fyrir

Hafrannsóknastofnun og Náttúrustofnun Grænlands hafa uppfært veiðiráðgjöf fyrir loðnuvertíð vetursins. Í júní gerði Hafró ráð fyrir að veiða mætti 358.044 tonn en ný ráðgjöf sem birtist í dag gerir ráð fyrir ríflega 105.000 tonna veiði.Í bergmálsmælingum í september reyndist fjöldi loðnu undir væntingum. Í tilkynningu er þó tekið fram að vegna óhagstæðra aðstæðna nyrst á leiðangurssvæðinu náðist ekki að kanna allt svæðið þar sem loðnan heldur sig. Stærð stofnsins gæti því verið vanmetin. VOND VEÐUR OG HAFÍS HÖMLUÐU MÆLINGUM NYRST Á LEITARSVÆÐINU Rannsóknaskipin Tarajoq og Árni Friðriksson voru við loðnumælingar mestan hluta septembermánaðar. Þau fylgdust með loðnu við austurströnd Grænlands og norður af Íslandi. Skipin lentu oft í vondu veðri, sér í lagi nyrst á svæðinu. Þar þurfti að s
Ráðleggja minni loðnuveiði en gert var ráð fyrir

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd