Andri Már dæmdur í 8 ára fangelsi í Reykholtsmálinu

Andri Már Mortenssen Birgisson var í dag dæmdur í átta ára fangelsi fyrir hlut sinn í Reykoltsmálinu. Frá refsingu hans dregst 41 dagur þar sem hann sat í gæsluvarðhaldi frá 26. apríl til 6. júní 2024.Alls voru sex ákærð í málinu, fimm karlar og ein kona, fyrir að halda manni föngnum á heimili sínu í Reykholti í Bláskógabyggð og beita hann harkalegu ofbeldi til þess að hafa af honum fé í apríl 2024.Dómur í málinu var kveðinn upp klukkan þrjú í Héraðsdómi Suðurlands á Selfossi í dag. Dómurinn hefur enn ekki verið birtur.Ingunn Rut Sigurðardóttir, barnsmóðir Andra, og Pétur Már Mortesen, bróðir Andra, fengu bæði þriggja ára fangelsisdóm fyrir sinn hlut í málinu. Frá þeirra refsingu dregst um mánuður þar sem þau sátu í gæsluvarðhaldi. Ingunn Rut játaði þátt sinn í málinu að hluta en sagðist e
Andri Már dæmdur í 8 ára fangelsi í Reykholtsmálinu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd