Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, sendiherra Íslands í Bretlandi og fyrrverandi utanríkisráðherra, segir andrúmsloftið í Úkraínu, sérstaklega í höfuðborginni, vera talsvert þyngra en í fyrri heimsóknum sínum til landsins. Enda hafi mannfall almennra borgara í árásum Rússa aukist og útlit sé fyrir erfiðan vetur.„Ég verð að segja að það er annað andrúmsloft, sérstaklega í Kænugarði, þar sem árásir hafa stigmagnast verulega undanfarnar vikur. Álagið á almenna borgara, á heimilum sínum, á leiðinni í vinnuna og í skólann, hefur ekki verið meira frá upphafi stríðs.“Þá séu sífellt fleiri íbúar borgarinnar að hugsa sér til hreyfings til að finna sér annan stað fyrir köldustu mánuðina.„Maður getur ekki annað en fundið fyrir samkennd með fólki sem heldur áfram að berjast, hver á sínum vettvangi,