Fjórir karlmenn og ein kona eru grunuð um stórfellda líkamsárás gegn karlmanni á þrítugsaldri í Reykjanesbæ fyrr í mánuðinum. Lögregla hefur handtekið og yfirheyrt fjögur þeirra en leitar þess fimmta.Þetta staðfestir Stefán Sveinsson lögreglufulltrúi á Suðurnesjum.Þau grunuðu eru á þrítugs-, fertugs-, og fimmtugsaldri. Þau fjögur sem lögregla hefur haft uppi á hafa þegar verið yfirheyrð og þeim sleppt aftur. Enginn situr í gæsluvarðhaldi í tengslum við málið. Bæði brotaþoli og hin grunuðu eru Íslendingar. FREKAR PERSÓNULEGAR ERJUR EN SKIPULÖGÐ BROTASTARFSEMI Stefán segir brotaþola útskrifaðan af sjúkrahúsi og að betur hafi farið en á horfðist í fyrstu. Málið sé engu að síður rannsakað sem stórfelld líkamsárás þar sem sérlega hættulegri aðferð hafi verið beitt. Lögregla telur að barefli