Rauða herdeildin, betur þekkt sem RAF, var einn þekktasti hryðjuverkahópur Evrópu á áttunda áratugnum. Haustið 1977 fundust leiðtogar hennar látnir í klefum sínum í Stammheim fangelsinu, því rammgerðasta í öllu Vestur-Þýskalandi. Yfirvöld sögðu fangana hafa stytt sér aldur en sú skýring er enn umdeild í Þýskalandi.