Um 200 nemendur við Háskólann á Bifröst gátu ekki tekið próf á fimmtudaginn vegna tæknivandræða.„Það komu upp auðkenningarvandræði vegna uppfærslu hjá Inspera, sem er þjónustuaðili prófakerfisins hjá okkur, og þetta varð til þess að við urðum að virkja viðbragðsáætlun á fimmtudagsmorguninn og fresta prófinu sem til stóð að taka þá,“ segir Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, rektor Háskólans á Bifröst, um tæknibilun sem upp kom á fimmtudag.Tæknilegu vandræðin höfðu áhrif á um 200 nemendur. Einhverjum var boðið að taka heimapróf í staðinn en stór hluti tók prófið á laugardaginn. Allir nemendur við Bifröst eru í fjarnámi. Einhverjir voru mættir í sínar fjarnámsaðstöður til að taka prófið þegar vandræðin uppgötvuðust. Sumir voru svekktir þó að flestir hafi sýnt þessu skilning, segir Ólína.„Við feng