Húsleit hjá þingmanni Demókrata

Húsleit var gerð í morgun á heimili Ilhan Omar, þingkonu Demókrata. Fox News greinir frá því að leitin hafi verið framkvæmd af rannsakendum Þjóðaröryggisstofnunar Bandaríkjanna.Í sömu frétt kemur fram að leitin tengist rannsókn á því hvort glæpsamlegt athæfi hafi verið framið þegar skjöl voru lögð fram við komu hennar til landsins. Omar er fædd í Sómalíu og var barn að aldri þegar hún kom til Bandaríkjanna. Faðir hennar, sem nú er látinn, framvísaði skjölunum. Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna staðfesti að húsleit hefði farið fram í Washington en gaf ekki frekari upplýsingar.Ítrekað hefur slegið í brýnu milli Omar og Donalds Trump forseta Bandaríkjanna. Omar hefur verið sérstaklega gagnrýnin á aðgerðir Trumps gegn innflytjendum. Tom Homan, sérstakur landamærakeisari sem Trump skipaði til að
Húsleit hjá þingmanni Demókrata

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd