Gular og appelsínugular viðvaranir á miðvikudag og fram á fimmtudagsmorgun

Óveðrið sem geisar á miðvikudag skellur á um klukkan sex að morgni og gengur ekki niður að fullu fyrr en um klukkan sex næsta dag.Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir í flestum landshlutum vegna veðursins. Versta veðrinu er spáð á Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra. Þar hafa verið gefnar út appelsínugular viðvaranir þegar veðrið verður í mestum ham.Áfram verður fylgst með þróun veðursins. Viðbúið er að fleiri viðvaranir bætist við þegar líður á daginn eða á morgun.Viðvörunin á Vestfjörðum gildir frá fimm síðdegis á miðvikudag til tvö eftir miðnætti aðfaranótt fimmtudags og viðvörunin á Ströndum og Norðurlandi vestra frá átta að kvöldi miðvikudags til klukkan fimm að morgni fimmtudags. Ekkert ferðaveður verður meðan á þessu stendur.Gular viðvaranir hafa verið gefnar út á stæ
Gular og appelsínugular viðvaranir á miðvikudag og fram á fimmtudagsmorgun

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd