Vill standa fyrir sigri einlægninnar á kaldhæðni

Max Porter, einn athyglisverðasti höfundur breskra samtímabókmennta, var staddur hér á landi í síðustu viku. Porter steig á svið í Tjarnarbíói og flutti verkið All This Unreal Time, eða Allan þennan óraunverulega tíma, og svaraði svo spurningun rithöfundanna Fríðu Ísberg og Þórdísar Helgadóttur.Í verkum Porters liggur persónum oft mikið á hjarta og verða að „segja eitthvað áður en það er of seint“ eins og segir á einum stað í Allan þennan óraunverulega tíma.„Hluti af þessu er óþolinmæði, ég hef lítið þol fyrir tímasóun. Óheiðarleikanum sem felst í því að forðast hluti eða hreinlega ljúga. Maður kveikir stundum á útvarpinu og tvær manneskjur tala saman og hvorug segir nákvæmlega það sem býr þeim í brjósti,“ segir Porter í viðtali við Jóhannes Ólafsson í þættinum Bara bækur. VAKTI ATHYGLI
Vill standa fyrir sigri einlægninnar á kaldhæðni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd