Óheppilegt að ráðast í mengandi starfsemi í óþökk nærsamfélags

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, tók í dag á móti undirskriftarlista um að stöðva leyfisveitingu til sjókvíaeldis á Seyðisfirði. Fyrirtækið Kaldvík hefur fengið leyfi fyrir tíu þúsund tonna laxeldi í firðinum og var ákvörðuninni mótmælt bæði í Reykjavík og á Seyðisfirði um helgina.Yfir 13 þúsund manns hafa skrifað undir áskorun til stjórnvalda. Forsvarsmenn VÁ, félags um vernd fjarðar, fóru á fund ráðherra í morgun og afhentu honum listann.Umhverfisráðherra tók í dag á móti undirskriftalista um stöðvun leyfisveitinga til sjókvíaeldis á Seyðisfirði. 13 þúsund skrifuðu undir. Ráðherra segir almennt óheppilegt að fara af stað með mengandi starfsemi í óþökk nærsamfélagsins.Benedikta Guðrún Svavarsdóttir formaður VÁ kynnti honum listann sem var prentaður út á eitt
Óheppilegt að ráðast í mengandi starfsemi í óþökk nærsamfélags

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd