Um 60% af öllu því kjöti sem flutt er inn til landsins kemur frá nokkrum löndum, þó langmest frá Póllandi og Litáen. Á fyrstu sjö mánuðum þessa árs jókst kjötinnflutningur um 14% að magni miðað við sama tíma í fyrra.Nýlega var Dagur landbúnaðarins haldinn og var af því tilefni blásið til sérstaks málþings þar sem yfirskriftin var; Landbúnaður í heimi breytinga – Öryggi, verðmætasköpun og framtíðartækifæri.Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtaka Íslands setti þingið þar sem hann kom víða við í ræðu sinni.„Ég vil sjá landbúnað sem er öflugur, arðbær og sjálfbær. Landbúnað þar sem ungt fólk sér raunveruleg tækifæri, landbúnað þar sem tæknin þjónar fólkinu en leysir ekki úr gildi þekkingu og reynslu bóndans,” sagði Trausti og hélt áfram.„Þegar ég lít yfir íslenskan landbúnað sé ég ekki atvi