Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, mælti í síðustu viku fyrir frumvarpi um breytingar á húsaleigulögum. Þar er meðal annars lagt til að mánaðarleg vísitölutenging leigu verði bönnuð og að leigufjárhæð geti að hámarki tekið breytingum einu sinni á ári. Auk þess er lagt til að sett verði hámarksþak á reglubundnar hækkanir leigufjárhæðar.Frumvarpið var lagt fram sem liður í aðgerðum ríkisstjórnarinnar til að greiða fyrir því að kjarasamningar héldu. Töluvert var tekist var á um áhrif frumvarpsins á þingi. Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, og Sandra Sigurðardóttir, þingmaður Viðreisnar, ræddu breytingarnar í Vikulokunum síðasta laugardag. Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, óttast að fyrirhuguð leigubremsa dragi úr framboði leiguhúsnæðis og geti hækkað leigu. San