Metsekt fyrir að nota upplýsingar af Grindr ólöglega

Persónuverndarstofnun Noregs hefur sektað auglýsingafyrirtækið Xandr um 92 milljónir króna fyrir að nota viðkvæmar persónuupplýsingar viðskiptavina stefnumótaþjónustunnar Grindr í markaðsstarfi sínu.Sektin, sem er andvirði tæplega 1,2 milljarða íslenskra króna, er hæsta sekt sem Persónuverndarstofnunin hefur lagt á fyrirtæki. Áður hafði Grindr verið sektað um 65 milljónir norskra króna, andvirði 830 milljóna íslenskra króna.Xandr er í eigu Microsoft.Line Coll, forstjóri norsku persónuverndarstofnunarinnar, segir í tilkynningu að brot fyrirtækisins séu sérstaklega alvarleg. Xandr hafi haft milligöngu um að senda persónuupplýsingar þúsunda Grindr-notenda í Noregi til fjölda fyrirtækja, hugsanlega þúsunda fyrirtækja. Þeirra á meðal séu upplýsingar um kynhneigð viðskiptavinanna.Norsku neytenda
Metsekt fyrir að nota upplýsingar af Grindr ólöglega

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd