Emmanuel Macron Frakklandsforseti hefur ekki notið minni vinsælda frá því hann tók við embætti árið 2017. Sjö mánuðir eru uns seinna kjörtímabili Emmanuels Macron lýkur. Fyrri umferð kosninganna verður 18. apríl og sú síðari 2. maí, fái enginn helming atkvæða.Samkvæmt niðurstöðum nýrrar netkönnunar Ipsos BVA-Cesi líta aðeins 15 prósent landsmanna forsetann jákvæðum augum. Fallið er þó ekki hátt frá síðustu könnun þegar hlutfall jákvæðra var 16 af hundraði.Ríkisstjórn Macrons glímir við fjölda vandamála sem endurspeglast í skoðanakönnunum. Viðvarandi orkukrísa, umfangsmikil mótmæli framhaldsskólanema vegna bágs aðbúnaðar og miklar deilur í þinginu um fjárlagafrumvarp þykja lóð á vogarskálar óvinsældanna.Vinsældir forsætisráðherrans Sébastiens Lecornu hafa þó aukist um tvö prósentustig milli