Regnfötin eru við hæfi í dag því það getur orðið ansi blautt víða. Ofan á bætist nokkur vindur sunnan- og vestantil og mikill vindur á Norður- og Austurlandi.Veðurspáin er svohljóðandi:Sunnan 5-13 metrar á sekúndu og skúrir sunnan- og vestantil. Suðaustan og austan 10-18 og rigning á Norður- og Austurlandi fram undir hádegi, en lægir síðan og léttir til þar.Suðvestlæg eða breytileg átt 3-8 m/s á morgun, en 8-13 við suðausturströndina. Skúrir, en úrkomulítið á norðaustanverðu landinu fram eftir degi.Hiti 6 til 12 stig, mildast fyrir norðan.