Fyrirskipar rannsókn á heimildarmönnum í verðlaunamyndinni NAZA

Benjamin Netanyahu forsætisráðherra Ísraels hefur fyrirskipað rannsókn á nafnlausum heimildarmönnum sem koma fram í heimildamyndinni NAZA.Heimildarmyndin er eftir Ísraelana Yuval Abraham og Rachel Szor og hefur fengið mikla athygli og unnið til verðlauna á kvikmyndahátíðum undanfarið. Myndin byggir á vitnisburði 24 ónafngreindra uppljóstrara í her og leyniþjónustu ísraelska hersins sem lýsa því hvernig gervigreind var nýtt við árásir til að drepa tugþúsundir óbreyttra borgara á Gaza. SEGIR HEIMILDAMYNDINA RÆGJA ÍSRAEL OG ÍSRAELSHER UM HEIM ALLAN Netanyahu fór fram á það í gær að starfsmannastjóri ísraelska hersins, yfirmaður innlendu leyniþjónustunnar og ríkissaksóknari hefji rannsókn á því hverjir tóku þátt í myndinni og að þeir verði sóttir til saka. Greint var frá þessu í tilkynningu
Fyrirskipar rannsókn á heimildarmönnum í verðlaunamyndinni NAZA

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd