Niðurstöður Samtalsins voru kynntar í Hörpu í gær. Samtalið fór fram á laugardag, þegar fólk settist niður í rúmlega 20 skólum víða um land og reyndi að svara spurningunni um hvernig samfélag það vildi.„Helsta niðurstaðan sem mér finnst áhugaverð er að við þurfum fleiri samtöl," segir Lísa Margrét Gunnarsdóttir, formaður Landssamtaka íslenskra stúdenta.80% þátttakenda sögðust vilja mæta í annað samtal og margir vildu hafa það árlegt. Verkefnið var hugmynd Höllu Tómasdóttur forseta Íslands sem er afmælisbarn dagsins.„Ég horfi ekki á þetta eins og samtalinu sé lokið. Ég horfi meira á þetta eins og samtalið hafi verið að hefjast aftur, eftir að of mikill tími okkar hefur farið í skjái og samfélagsmiðla,“ segir Halla.