Handtóku 61 vegna gruns um skipulagningu skemmdarverka

Yfirvöld í Alsír greindu frá því í gær að 61 Marokkómaður hefði verið handtekinn fyrr í þessum mánuði vegna gruns um að vera að leggja á ráðin um skemmdarverk og grafa undan öryggi í samfélaginu.Meðal hinna handteknu er fyrrum hermaður í her Marokkó. Hópurinn kom yfir til Alsír frá Túnis.Styrt hefur verið á milli stjórnvalda í Alsír og Marokkó í mörg ár og landamærum landanna hefur verið lokað síðan 1994. Alsír sleit svo öllum diplómatískum samskiptum við Marokkó árið 2021.Eitt helsta ágreiningsefni landanna er Vestur-Sahara. Þessi fyrrum spænska nýlenda hefur að mestu verið undir stjórn Marokkó síðan 1975 en er skilgreind sem svæði án sjálfsstjórnar samkvæmt Sameinuðu þjóðunum.Polisario-hreyfingin, sem vill stofna sjálfstætt ríki hinnar innfæddu Sahrawi-þjóðar í Vestur-Sahara, átti í vopn
Handtóku 61 vegna gruns um skipulagningu skemmdarverka

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd