Árásir á orkuinnviði í Úkraínu þrátt fyrir meint samkomulag um vopnahlé

Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti segir að Rússar hafi gert árásir á orkuinnviði í Kyiv og Kharkiv í gær eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti greindi frá því að Úkraínumenn og Rússar hafi gert samkomulag um að láta af árásum á orkuinnviði hvors annars.Fjöldi héraða í Úkraínu urðu rafmagnslaus eftir árásirnar.Úkraínuforseti segist ekki kannast við umrætt samkomulag og Rússland hefur ekki tjáð sig um staðhæfingu Trumps. Zelensky segir þó að það standi ekki á Úkraínumönnum að virða vopnahlé, en Rússar verði að virða það sömuleiðis.Fjöldi þjóðarleiðtoga hefur lýst yfir stuðningi við Úkraínu síðustu daga eftir að greint var frá samningi Bandaríkjanna og Rússlands um dísilolíuviðskipti.Kanadíski forsætisráðherrann Mark Carney fordæmir samninginn og segir hann þvert á tilraunir Úkraínu, Kanada
Árásir á orkuinnviði í Úkraínu þrátt fyrir meint samkomulag um vopnahlé

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd