Fimm saknað eftir skyndiflóð í Nepal

Flóðið hreif með sér 45 hús, þrjár virkjanir og fjórar brýr.EPA / NTNC-MCAP/HANDOUTFimm er saknað eftir skyndiflóð í Gorkha-héraði í Nepal í dag um hundrað kílómetra frá höfuðborginni Katmandu.Flóðið hreif með sér 45 hús þegar skriða féll niður í ánna Budhi Gandaki og olli miklu flóði. Þrjár virkjanir og fjórar brýr eyðilögðust í flóðinu. Yfir 80 var bjargað á lífi skömmu eftir að flóðið féll.Íbúar í Nepal eru enn að jafna sig eftir skyndiflóðið 26. ágúst, þegar 1.400 fórust. Enn er yfir 5.000 saknað eftir það flóð.Þá varð annað minna flóð og skriða í lok september og 21 fórst í þeim náttúruhamförum.
Fimm saknað eftir skyndiflóð í Nepal

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd