Donald Tusk forsætisráðherra Póllands greindi frá handtökunni í færslu á X og hrósaði lögreglunni fyrir skjót og góð viðbrögð.Greint var frá því í dag að pólska lögreglan hefði fengið upplýsingar um mögulegar tilraunir til að ráða Tusk og varnarmálaráðherra Póllands, Wladyslaw Kosiniak-Kamysz, af dögum.Ekki hefur verið gefið upp hvers konar árásir voru í bígerð, né hvenær og hvar átti að fremja þær.Lögregluyfirvöld í Póllandi hafa verið á hæsta viðvörunarstigi eftir hnífaárásir í skólum og víðar undanfarið. Pólverjar eru miklir bandamenn Úkraínu og hafa varað við skemmdarverkum og fjölþáttaógnum Rússa í Póllandi en stjórnvöld í Moskvu hafna því að bera ábyrgð á þeim.Innanríkisráðherra Póllands, Marcin Kierwinski, segir of snemmt að segja til um hvort maðurinn sem var handtekinn hafi tengsl