Landsvirkjun þurfti að leggja af starfsemi í höfuðstöðvum sínum við Háaleitisbraut 68 eftir að myglu varð þar vart 2022.Líklega er ekkert stórhýsi á höfuðborgarsvæðinu, sem stendur tómt eins vel staðsett og það.Landsvirkjun ákvað að selja húsið, 4500 fermetra, og það tókst í ágúst í fyrra. Kaupverð var 1,2 milljarðar króna. Kaupandi var þróunar- og fasteignafélagið Landsbyggð ehf. sem hefur meðal annars staðið fyrir uppbyggingu miðbæjarins á Selfossi.Landsbyggð á nú 5600 fermetra af húsinu eftir að hafa fest kaup á fleiri eignarhlutum á jarðhæð. Búið er að gera leigusamning. Þegar fréttastofa óskaði eftir því við Landsbyggð hver það væri sem ætlaði að leigja húsið gat Landsbyggð ekki upplýst fréttastofu um nafn leigutaka því að nafn hans væri trúnaðarmál að svo stöddu.Miklar endurbætur sta