„Leyfið er veitt á þeim forsendum að fyrir liggi tillaga til lagabreytingar sem opnar á svona rannsóknir. Það hefur ekki fengið þinglega meðferð og ráðherrann sem veitir leyfið er ekki meiri bógur en svo að hann lætur skrifstofustjóra í ráðuneytinu skrifa undir það,“ segir Haraldur Eiríksson, eigandi Hökla ehf., leigutaka Laxár í Kjós, í samtali við Morgunblaðið.