Eyðileggingin í Kyiv nístir hjartað

Úkraínumenn búa sig undir veturinn sem óttast er að verði erfiður. Tanya Korolenko, sem býr í höfuðborginni Kyiv, segir stöðugar drónaárásir reyna meira á en síendurtekið rafmagnsleysi. Það nísti hjartað að sjá eyðilegginguna í borginni.„Staðan í Kyiv er erfiðari en nokkurn tíma áður,“ segir Tanya. „Þegar stríðið hófst 2022 vissum við að það væri mjög slæmt. Það sem er að gerast núna er þó miklu verra en þá,“ segir hún í viðtali við fréttastofu.Tanya flýði til Íslands þegar stríðið hófst, bjó hér í tvö ár og aðstoðaði landa sína á flótta. Nú býr hún í Kyiv og hefur eins og aðrir borgarbúar þurft að aðlagast afleiðingum stríðsins. Ein þeirra er slitrótt rafmagn vegna árása Rússlandshers á orkuinnviðiRafmagni sé skipt niður á hverfin eftir ákveðnu skipulagi en stundum gangi skipulagið ekki u
Eyðileggingin í Kyiv nístir hjartað

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd