Nýr meirihluti myndaður í Suðurnesjabæ viku eftir að sá fyrri sprakk

S-listi Samfylkingar og óháðra og B-listi Framsóknar og óháðra hafa náð samkomulagi um myndun nýs meirihluta í bæjarstjórn Suðurnesjabæjar. Samkomulagið var undirritað á Kirkjubólsvelli í kvöld. Þetta kemur fram í tilkynningu.Samfylkingin sleit samstarfi við D-lista Sjálfstæðisflokksins og óháðra síðasta sunnudag vegna trúnaðarbrestar, fjórum mánuðum eftir að flokkarnir mynduðu meirihluta eftir sveitarstjórnarkosningarnar í maí.Óformlegar viðræður Samfylkingarinnar og Framsóknar hófust í vikunni og á fimmtudag var greint frá því að flokkarnir væru búnir að hefja formlegar meirihlutaviðræður. ALEXANDRA ÁFRAM BÆJARSTJÓRI Samkvæmt tilkynningu flokkanna verður Svavar Grétarsson áfram formaður bæjarráðs og Anton Kristinn Guðmundsson, oddviti Framsóknar, tekur við embætti forseta bæjarstjórna
Nýr meirihluti myndaður í Suðurnesjabæ viku eftir að sá fyrri sprakk

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd