„Ég vona að það verði sett eitthvað stopp á þetta“

Mótmæli voru haldin á Seyðisfirði og Austurvelli í Reykjavík í dag gegn sjókvíaeldi í Seyðisfirði. Fyrirtækið Kaldvík hefur fengið leyfi fyrir tíu þúsund tonna laxeldi í firðinum.„Ég vona að það verði sett eitthvað stopp á þetta. að það verði einhver mikilvægur sem hugsi sig tvisvar um,“ segir Ragnhildur Eik Árnadóttir mótmælandi.Um 200 manns mótmæltu á Seyðisfirði þar sem þátttakendur lokuðu einu landleiðinni inn í fjörðinn til að sýna fram á að fiskeldið, sem og laxeldisfyrirtækið Kaldvík, væru ekki velkomin þangað.Á sama tíma og var einnig mótmælt á Austurvelli. Vá, félag um vernd fjarðar, Landvernd og Verndarsjóður villtra laxastofna, stóðu fyrir mótmælunum.„Það er verið að gera ranga hluti með því að setja fiskeldi í þennan þrönga, fallega fjörð,“ segir Júlía Hannam mótmælandi.
„Ég vona að það verði sett eitthvað stopp á þetta“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd